| Forsíða | Fyrirtækið | Vörur | Veisluþjónusta | Heitur matur | Molar |
Veislubakkar
Skráning á póstlista:


FROSNIR RÉTTIR

NÝR BÆKLINGUR

Brauðbíllinn

Hafa samband


Veisluþjónusta Ávaxtabílsins

Ávaxtabakkar, grænmetisbakkar, brauðbakkar, brauðkörfur, salatréttir, pastaréttir, súpur.....


Fyrirtæki geta hér pantað veislubakka vegna funda, ráðstefna og tengdra hluta þar sem litið er á kostinn sem viðbit en ekki sem máltíð. En við bjóðum líka uppá máltíðir; salat, súpur, pasta, brauð og fleira fyrir stóra hópa, þar sem bæði er hægt að afhenda matinn í einstaklingsskömmtun sem og í stærri einingum. Vegna fjölbreytni þjónustunnar höfum við oft verið fengin til að sjá um ráðstefnur sem standa yfir allan daginn og teflt þar fram hinum ýmsu réttum sem dekka morgunmat, hádegismat og nónkaffið t.d. með ávaxtasalati, ávaxtaskyrdrykkjum, ávaxtamuffins auk hádegismatar.


Við bjóðum uppá veislubakka og samsettar körfur. Í körfunum er sérbakað úrvals brauð í fyrirrúmi auk meðlætis af margvíslegum toga; ostar, pestó, hummus, melóna, hráskinka, vínber, rauðlaukur, tómatar og paprika (himneskt með hummusnum)

Ávaxtaveisla og grænmetisveisla eru svo feykivinsæll kostur þegar gera á sér hollan dag en auk þess snörum við hæglega fram bragðgóðum brauðbökkum og enn er hollari kanturinn í fyrirrúmi.



Pantanir þurfa að berast okkur fyrir kl. 12 daginn áður
Fyrirtækjaáskrift:
  Kennitala:  
  Lykilorð:  
   
Á fyrirtækið þitt í reglulegum viðskiptum við bakarí?
  Já fáum sent
  Já förum sjálf í bakaríið
  Nei
Senda inn svar

Vertu vinur okkar
Ávaxtabíllinn - Ávextir í áskrift
Sími: 517-0110
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is   www.avaxtabillinn.is