Fyrirtæki geta pantað bakkavörurnar og eru þær sendar um leið og aðrar pantaðar vörur með morgundreifingunni.
Veislubakkar
Ávaxtabakki og grænmetisbakki með léttri og góðri ídýfu. Bjóðum líka uppá snittubakka og ostabakka
Bakkarnir eru fyrir 10-20 manns eftir því hvert tilefnið er.
Kokkteilboð 10, sýning 20. Bakkarnir kosta 3.200 kr.
Glös
Hér eru 3 tegundir; ávaxtasalat, grænmetisblanda og melónubitar. Melónubitarnir kosta 300 kr. en hin glösin
325 kr.
Langlokur
Brauðið er sérbakað fyrir Ávaxtabílinn — massífur hollustuhleifur, sneisafullur af fræjum og kornum. Smurt með svakalega góðum hollustusósum í bland við salatblöndu Ávaxtabílsins. Loks toppað með Dukkah og Klettasalati.
Kjúklingurinn kostar 495 kr. en túnfiskurinn er á 475 kr.
Salat- og pastabakkar (275g)
Salatbakkarnir hafa að geyma girnilega salatblöndu hússins, ristuð fræ, hnetur og Dukkah. Í pastabökkunum er á ferðinni lífrænt ræktað heilhveitipasta af bestu gerð auk salatblöndunar. Girnilegar og hollar sósur eða ídýfur toppa alla rétti. Pastabakkar eða salatbakkar með kjúklingi kosta 525 kr.
Súper samlokur
Um er að ræða annað sérbakað brauð fyrir Ávaxtabílinn — og það verður ekki séð í gegnum þennan hleif - kyrfilega hlaðinn korni og fræjum Ferska grænmetið er á sínum stað, ásamt fræjum og hnetum. Með þessum samlokum er mæjónesálögum og hvítu hveitibrauðsdögunum létt af samlokum hér á landi. Til lukku með það. Kjúklingslokan kostar 415 kr. en grænmetis-, rækju og túnfiskslokurnar eru á 385 kr.
Brauðbíls Samlokur
Túnfisks, rækju, roastbeef, hangikjöts. Samlokurnar frá Brauðbílnum eru léttar og góðar en tilheyra ekki hollustlínu Ávaxtabílsins. Roastbeef er á 385 kr. hangikjötslokan er á 375 kr. en hinar tvær eru á 365 kr.
Ávaxtaskyrdrykkir
Þessir drykkir hafa aðeins að geyma hreint skyr og ávexti. Þeir sem vilja viðbættan sykur verða að leita annað. Önnur tegundin er með jarðaberjaívafi og hin bláberja. 400 g glasið kostar 395 kr. en 300 g glasið er á 330 kr.
Ávaxtaríkur eftirréttur
Hálft kíló af ávaxtasalatinu góða - steinliggur sem frísklegur eftirréttur og gott að vita af þessu hollum ávöxtum í maganum á fjölskyldumeðlimum. Verð 475 kr.
Frísklegur partýbakki
Gráupplagður fyrir partýið, fundi og aðra mannfagnaði. Þarna kennir ýmissa grasa; fullt af grænmeti, melónubitum og frískleg ídýfa í miðjunni. Verð 1.495 kr.
Allar þessar vörur geta fyrirtæki pantað og fengið sendar á morgnana. Sendingarkostnaður er 500 kr. og lágmarkssending 3.000 kr.
Verð er birt án 7% VSK |