Ávaxtabíllinn býður nú heitan mat í hádeginu. Um er að ræða léttan, hollan og skemmtilegan matseðil, sem er ekki síst sniðinn að meðalstórum og litlum fyrirtækjum.
Verðið á matnum er 990 kr. en súpur eru er á 750 kr.
Hádegismatseðill
Við bjóðum einnig upp á kalt hlaðborð í hádeginu. Þar er í boði m.a. nýbakað brauð, brauðsalöt, niðurskorið grænmeti, pastasalat og fleira, mismunandi frá degi til dags. Hafa sum fyrirtæki þann háttinn á að fá heitan mat 1 til 2 daga í viku og kalt borð hina dagana enda um að gera að nýta sér fjölbreytnina.
Hugmyndin snýst um, að fyrirtæki panti mat fyrir komandi viku í síðasta lagi á hádegi á föstudegi. Í kaupbæti er svo ávöxtur og með þessu tryggjum við nægt eldsneyti fyrir seinni hálfleikinn í vinnunni. Matseðilinn má alltaf finna á forsíðu heimasíðu okkar.
Ef pantað er fyrir færri en 10 manns bætast við kr. 1.100.- í sendingarkostnað.
Einnig má sækja matinn til okkar og er hann þá afhentur í einstaklingsbökkum og enginn kostnaður leggst þá á matinn.
Við erum alltaf tilbúin að koma í heimsókn og gefa ykkur tilboð í bestu matarlausnirnar fyrir ykkar fyrirtæki.
Verð er birt án 7% VSK
|